Killer Queen
20.11.2007 18:28:02 / Salóme María

Nýtt og betra blogg

Komin með nóg...

 

http://salomemaria.bloggar.is/

 

Sjáumst í framtíðinni :) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 16:37:56 / Salóme María

Og það snjóar...

...eða svona næstum því :)

Í dag eiga margir afmæli :) Fyrst vill ég senda Óla litla sæta frænda mínum kossa og knús þar sem hann er 3ja ára í dag :) Þessi elska :) Í þessum rituðu orðum er næstu öll fjölskylan í afmælisboði hjá þessu litla prins :) Svo vill ég óska henni Kolbrúnu sætu sundskvís til hamingju með afmælið :) Njóttu dagsins og taktu þér frí frá lærdómnum í dag! Átt það skilið :)

Á meðan allir eiga afmæli þá sit ég og læri :$  Sosum vorkenni mér ekkert voðalega...en samt :) Átti ánægjulegt kvöld í gær með henni Völu sætu. Kíkti í heimsókn til mín og við fórum saman í partý hjá Magga og félögum. Kvöldið einkenntist af miklum hlátri og prumpufýlu :$ ekki þó úr okkar rassi :) Eftir partýið ákváðum við að fara niður í bæ og fá okkur pizzu, lögðum það á okkur þrátt fyrir feikna kulda ;) Töluðum svo ákaft þegar niður í bæ var komið, að við gleymdum alveg að fara í hraðbanka til þess að taka út pening, þar sem flestir ítalskir pizzastaðir hér í bæ taka ekki við erlendum kortum, eða kortum yfir höfuð. Föttuðum það þegar við vorum komnar á áfangastað og þurfum því að leita af næsta hraðbanka...eftir mikla leit fundum við loks hraðbanka sem virkaði! Og því fórum við sælar heim með pizzu í annari og pepsi í hinni :)

Á morgun kemur hún Belinda síðan heim :) Mikil tilhlökkun hér á heimili :) 

Næsta vika fer svo í lærdóm :whut:

Svo er hún Begga sæta að koma 4. desember :) hittir svona vel á þar sem ég verð vonandi búin að skila af mér flestum verkefnum :) Getum þá vonandi leikið eitthvað saman. Síðan þremmur dögum seinna kemur Simmi í heimsókn :)

Shit hvað tíminn flýgur...

...en ætla að halda áfram að lesa :cry:  en ef það er eitthvað sem mér finnst leiðinlegt að gera þá er það að lesa skólabækurnar :/ en óvell...

sjáumst von bráðar... 


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 21:59:23 / Salóme María

Þegar maður er einmanna...

 ...og langar heim, þá mæli ég með þessu:

 

www.jol.is

 

Sit hérna og hlusta á jólatóna :) voða ljúft...vildi samt ég væri heima á Íslandi núna :/ á morgun er frænkukvöld hjá okkur frænkunum í mömmu ætt. Árleg hefð síðan amma mín dó...og ég hef alltaf mætt. En ekki í ár og örugglega ekki á næsta ári heldur þar sem ég er búsett í Danmörku. 

Í gær hlustaði ég á þáttinn hans Óla Dóra bróðir á RVK FM 101.5 en hann er alltaf með þátt milli 20-22 á fimmtudagskvöldum. Og það var svo gaman að hlusta á hann...svo fékk ég meira segja kveðju :) Já elskulegur bróðir minn sendi mér, systir sinni kveðju alla leið til Danaveldis. Og ég get svarið það að það komu næstum tár...:*

 

En já...ætla að fara horfa á video með Reynsa sæta   


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 13:50:39 / Salóme María

Helgi :)

Jæja þá er enn ein helgin gengin í garð....shit hvað þetta líður hratt :)

Ég sit hérna við tölvuna, ný vöknuð :) er að hugsa um að fara læra...nenni því samt ekki.

Veðrið er lummó...bara rigning og eitthvað leiðinlegt. Sem betur fer er ég í fríi í dag...

Planið fyrir helgina er enn óráðið...en á samt örugglega eftir að einkennast af lærdómi og róleg heitum...kannski maður kíki eitthvert út á morgun...aldrei að vita.

Fórum á síðasta föstudag niður í bæ að fagna komu jólabjórsins :) Það var ágætist skemmtun. Fórum samt frekar snemma heim sökums ofdrykkju hjá sumum...nefni eingin nöfn :) En ég hitti samt Völu og vini hennar og vorum við með þeim allt kvöldið :) Það var gaman.

Stressið er svona rétt að byrja að hellast yfir mann...nú er bara rúmar þrjár vikur eftir að skólanum og það vill svo skemmtilega til að ég þarf að skila heilum þremur verkefnum í sömu vikunni :) Vei...þarf að skila einu 3. des, skila öðru 4. des og svo 6. des þarf ég að helda 2 kynningar og skila enn öðru verkefni! Já það er ekki að spyrja af því :) En 6. desember er ég líka eiginlega búin...þá er bara eftir 2 lítill munleg próf og svo eitt skriflegt lokapróf 20 des :) og já þá get ég loks byrjarð að anda :) og husgsað til jólana sem eru þá á næsta leiti. Finnst samt svolítið skít að þurfa að taka próf svona seint...en svona er þetta bara. Fæ samt þá lengri tíma til þess að læra undir það...það er sosum ágætt.

Er samt búin að ákveða þegar Simmi kemur hingað 7. des að þá ætla ég að byrja að kaupa inn jólagjafir...:) nenni ekki að byrja að pæla í því fyrr...enda nóg annað að gera :)

En jæja...ætla að fara vekja Reynsa snúð og byrja að læra! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:32:42 / Salóme María

Mér hlakkar svo til...:)

Shit hvað mig hlakkar til jólanna :) Veit það er kannski svolítið snemmt að byrja að hugsa um jólin en samt...það verður svo yndislegt!

Hlakka bara svo geðveikt til að klára þessa önn og fara heim :)

Get ekki beðið eftir að fá að keyra niður Grenigrundina á bláa vini mínum, sem er sko sárt saknað :/ En ég veit að hann er í góðum höndum og hvíliri lúin bein fyrir utan húsið mitt á Grenigrund 12 :)

Hlakka til að getað legið í leti í góða sófanum inní stofu á Grenigrundinni...jafnvel horft á Neighbours og Bold...:) Leikið með litlu frænkum mínum sem er sárt saknað! Tekið rúnta með stelpunum og hangið á kaffihúsi! Pakkað inn jólagjöfum með mömmu, Siggu Boggu og Stínu fínu! Skreyt jólatré með Siggu sætu og Pabba...þræða poppkorn til þess að hengja á tréð. Spila með mömmu og Rannveigu...hitta Óla Dóra bróðir og Þórarinn :) Fá að sjá krakkana hans Geira bróðirs :) 

En fyrst hlakkar mér til að fá Bellu heim og síðan Simma karlinn í heimsókn :)

 

Ykkar Salóme 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 20:54:31 / Salóme María

Pizzukassar

Já er að gera verkefni í skólanum um pizzukassa...ok hljómar óspennandi en samt....pælið í því. Það er nú ekki sjaldan sem maður pantar sér pizzu og þá vill maður nú að hún sé heit...ekki satt. Allavega við erum að vinna í þessu verkefni og ætlum að reyna að hanna nýja kassa sem einangra betur og viðhalda þvi pizzunni bæði heitri og kruspý :) Hmmmm :)

 

En endilega svarið þessum spurningalist og ég verð himin lifandi :) En gerið það fyrir morgundaginn því við ætlum að vinna úr niðurstöðunum á morgun :) 

 

http://www.informantics.dk/phpsurveyor/index.php?sid=6se

 

Takk og bless :) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 19:36:59 / Salóme María

Stærðfræði hvað...

Jæja þriðjudagskvöld í Köben...

Október að verða búin og nóvember á næsta leyti...shit hvar endar þetta :)

Á sunnudaginn fór ég næstum að gráta...elskuleg talvan mín til 4. ára var næstum búin að gefa upp öndina :) Ég var að vinna með hópnum mínum, ótrúlega hress á sunnudagsmorgni, kveiki á tölvunni og nema hvað...upp kemur blár skjár og hún slekkur á sér og ræsir sig á ný! Ég vissi nátturulega ekki mitt rjúkandi ráð...ákvað að bíða og sjá. En tölvufjandin gerði þetta ýtrekað :/ Það endaði með því að ég gekk frá henni og vann með Zainab á hennar tölvu. Var ótrúlega miður mín...far farin að íhuga tölvukaup og ég veit ekki hvað og hvað. Hélt að talvan væri hrunin eða eitthvað álíka. Ekki gott mál. Hringdi í Magga, Reyni og meira segja mömmu...:) Meina varð að segja fólki frá örlögum tölvunnar minnar :) Síðan þegar ég kem heim um kvöldið, og ætla að sýna Reynsa hvað talvan væri mikið fífl....þá bara virkaði hún! Og hefur virkað síðan. Vonandi virkar hún út þessa önn og þá hugsa ég að ég verð að endurnýja greyið :/ Er meira að segja að pæla í að kaupa mér Mac! Og vera ógeðslega kúl og læra að tek-a :) En já...

Shit...djöfull getur stærðfræði verði leiðinleg...var að vinna í verkefninu mínu í dag með Zainab og ég hélt bara að ég mundi deyja úr leiðindum...

 

En úpps þarf að ná í þvottinn :) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 20:08:13 / Salóme María

Myndir

Jæja er búin að láta inn myndir frá síðast liðnum vikum hér í köben :) Myndirnar eru undir Danmörk 2....

Njótið :)

 

Ætla að halda áfram að gera ekkert og láta mér leiðast...:) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 11:29:22 / Salóme María

Hún á afmæli í dag...

Mikið rétt! Móðir mín, hún Sigríður Borghildur aka Sigga Bogga er sextug í dag :)

Elsku mamma til hamingju með daginn! Njóttu hans í botn og láttu nú pabba gamla stjana við þig :) 

Já hún móðir mín á afmæli í dag :)

 

En já... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 21:43:43 / Salóme María

Jæja þá tekur hversdagsleikinn við enn á ný :/

Já mikið rétt...allt gott tekur enda :/  En þá getur maður farið að hlakka til næstu heimsóknar sem verður í byrjun desembers :) Þá kemur Simmi í heimsókn og verður í viku :)

En þessi helgi var æði...sóktum liðið á fimmtudaginn og nutum samvistana til fullnustu alla helgina :) Versluðum, fórum í tívolíið, Kristjaníu, heimsóktum litlu hafmeyjuna og margt fleira :) Enda er ég strax byrjuð að sakna þeirra og hlakka til að koma heim :)

 

En nú er fríi búið...og alvaran tekin við. Skóli á morgun og svona...

Ælta í sturtu og fara að sofa...margmiðið að vera ferskur fyrsta daginn eftir frí!

Kem með heimsóknarsöguna seina...

 

Bless kex 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 17:07:07 / Salóme María

Tveir dagar!

Já það eru einungis tveir dagar í vægast sagt atburð ársins :)

...Mamma, pabbi, Rannveig, Anna Stína, Ásthildur og Dóra Hlín eru að koma :) plús fullt af frænkum :) Mamma verður sextug á eftir viku, þann 23. október og í tilefni af því ákváðum við að bjóða henni og pabba til Köben :) til mín...:) og í bónus fæ ég fullt af frænkum í heimsókn. Seinustu ár höfum við frænkurnar í móðurætt haldið árlegt frænkukvöld í nóvember og þar sem aðal frænkan hún ég er búsett erlendis...var ákveðið að slá þessu öllu saman :)

Liðið lendir á fimmtudaginn um sex leytið og ætlum við Reynir að gera okkur ferð uppá Kastrup og sækja það :) Dóra frænka lendir að klst seina en þar sem hún og Ásthildur sæta verða hjá okkur Reyni ætlum við að bíða eftir skvísunni :) Mamma, pabbi, Rannveig og Anna Stína frænka verða á Hótel Squre sem er aðal hótelið í Köben...ok kannski ekki en samt á besta stað í bænum...á sjálfu Radhuspladsinu. Ég og Reynir erum svona 5-10 mín uppá Radhusplads þannig við verðum tíðir gestir :)

En ég get ekki beðið....fá að knúsa mömmu :) og alla!

 

En úr einu í annað...

Hún Erla heiðraði okkur með nærveru sinni á síðustu helgi og var sú heimsókn frábær í alla staði :) Hún kom á miðvikudagskvöldið þar sem hún fékk mótökunefnd á flugvöllin, þau Belinda og Reynsi sóktu hana og komu henni heilu á höldnu heim til okkar. Síðan kom greyið hún ég með fjórar pizzur og fékk að knúsa Erlu :) Þurfti nefnilega að mæta í Matlab tíma :( sem er sem betur fer BÚIÐ! S.l miðvikudagskvöld var seinasti tíminn og hrópa ég húrra fyrir...ætlaði að reyna að læra loksins á Matlab....og vitir menn ég lærði voða lítið af þessu blessaða kúrs...fæ samt eina einingu :) sem eru eitthvers konar sárabætur...En aftur að Erlu. Við sem sagt fórum út á miðvikudagskvöldið og hittum elskuna hana Rannveigu systir...:) Tókum því rólega og settumst á kaffihús. Voða næs...Erla var alveg himinlifandi yfir Köben og var í eingu sambandi við okkur Belindu er við röltum um Radhuspladsen...:) Nostralgía dauðans...

Á fimmtudaginn var kíkt í Frederiksberg Centrumið, CBS og á gamla staðin sem Erla bjó :) Nema hvað :) Síðan eftir góðan dag var tekið rölt á strikinu...fengið sér bjór (- ég) og keypt smá af fötum..hóst..já ég lét blekkjast :)

Á föstudaginn fórum ég og Erla aftur niður á strik í góða veðrinu...endilega þennan sama dag var allt samgöngukerfið í Köben í rusli og við vorum örugglega hátt í hálftíma niður í bæ...eftir gott rölt á strikinu, með nokkra poka í hönd ákvaðum við að halda heim, okkur var orðið kalt og svona...Ég fékk þá yndælis hugmynd að labba að Kongsins Nytorv og taka metróin heim...Nei! Við urðum að fara út á Norreport sem er eitt stopp frá Kongins Nytorv og þaðan þurftum við að labba uppá Radhuspladsen og taka strætó heim! Nei við ákváðum frékar að hitta Belindu og Reynsa peins í tívolíinu, því þar var ákveðið að verja kvöldinu...Þannig við stauluðumst upp strikið, í átt að Hard Rock til þess að hitta krakkana. Þegar þar var komið við sögu var bæði Reynir og Belinda komin vel í glas...:) Nátturulega happy hour...síðan fórum við í tívolíið þar sem ég, Belinda og Erla fórum í næstum öll tækin fyrir utan Róluna ógurlegu! Já því hún Bella gella dró mig bókstaflega í fallturnin :) og ég fór :) en shit hvað ég var hrædd :)


Laugardeginum var eitt í Svíþjóð :) indisleg ferð....mikið verslað og haft gaman af. Hittum meira segja Hrönn og Jónsa :)

 

Sunnudeginum var eytt í leti...

Æðileg heimsókn!

Takk Erla, vertu ávallt velkomin :)

Og nú er bara að bíða...bíða og bíða :) shit mér er meira segja farið að kvíða fyrir þegar mamma og þau fara heim...:( kemur örugglega tómleika tilfinning dauðans í mig :(

En já bless kex


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 11:23:21 / Salóme María

Nú er tíminn

Já svo sannarlega :)

Rannveig sæta systir mín kom í gær. Ég og Reynir fórum á flugvöllin og tókum á móti henni :) Það var svo geðveikt gaman að sjá hana og fá að taka utan um hana :* Við buðum henni síðan í mat, a la Reynir og við sýndum henni íbúðina okkar :) Ótrúlega gaman að hafa hana :) Ætlum að svo að hittast í kvöld! 

Svo er hún Erla Perla að koma á EFTIR :) Shit ég er búin að bíða eftir þessum degi svo lengi...Hún er örugglega núna í þessum töluðum orðum að dunda sér eitthvað í fríhöfninni :) Láta tíman líða :) Reynir og Bella ætla að sækja þessa elsku uppá flugvöll á meðan ég brýt heilan um Matlab, my best friend :) En í dag er seinasti tíminn í þessum kúrs þannig ég get eiginlega bara ekki sleppt honum...svo er ég líka búin að vera svo mikill letingi þessa viku...veit eiginlega ekki hvað er að mér...en ég er búin að vera heima bæði í gær og í dag....:/ en ég er samt búin að vera rosaduglega að læra :) og svo þarf ég að vera vel upplögð fyrir kvöldið því við æltum að kíkja eitthvað smá út í kvöld :)

Svo er bara 8 dagar í de hele familyen :)

 

Unaðslegt!

En já...ætla að vinna í þessu samviskubiti og reyna að læra meira :)

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 14:36:55 / Salóme María

...allt tekur enda um síðir

Djöfulsins helgin er búin, eða svona næstum því :)

Samt fín helgi að baki, ekki hægt að segja annað. Kíktum út bæði kvöldin og skemmtum okkur vel :) Samt svo glatað þegar maður á alltaf svona langar helgar, þegar helgin er búin... maður verður bara hálf latur...

En já í dag er sunnudagur, á morgun er mánudagur og síðan kemur þriðjudagur og þá er bara vika í að Rannveig sæta systir mín lendi hér í köben :) síðan kemur miðvikudagur og þá er bara vika þar til Erla sæta kemur í heimsókn! Shit...þið haldið örugglega að það sé ýkt leiðinlegt hjá okkur Reynir, ég geri ekki annað en að telja niður dagana þar til tíminn líður. En það er alls ekki málið...það er bara svo langt síðan maður sá alla og auðvitað hlakka manni til þegar þeir koma svo í heimsókn :)...en síðan kemur fimmtudagur og þá eru bara 2 vikur í Mömmu og pabba og margar fleiri :) Shit...

En já....nenni ekki meira...þarf víst að fara læra eitthvað...ekkert voða mikið búin að gera að því um helgina :)

 

Sjáumst 


» 13 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 22:39:29 / Salóme María

Loving it!

Djöfull elska ég hvað hlutirnir virðast vera óyfirstíganlegir í fyrstu en eru svo bara ekkert MÁL :) Mér er meira segja farið að líka vel við Rússann minn :)

en já...það rigndi í dag :( ótrúlegt! eins og var nú gott veður hér í gær, alveg blue sky og læti og meira segja HLÝTT :) Við Reynir ákváðum að fara bara niður í bæ og borða :) Ok enduðum reyndar svo á Subway eftirhermu, Sun eitthvað...sem er ekki næstum því eins gott og gamli góði Subway! En það var samt ljúft að rölta niður strikið í góða veðrinu og njóta þess að vera á lífi :) Ég nefnilega á það til að gleyma því...:)

En mikið var ég pirruð í dag...eða öllu heldur í morgun! Ok ég er 45 mín í skólann, ekkert rosalegt en samt...þarf að taka metró, lest og svo strætó. Já þarf að skipta 3var sinnum....en allavega hefur þetta ferðalag gengið áfallalaust fyrir sig hingað til...þar til í morgun! Ég var komin vel tímanlega uppí Lyngby station sem er btw aðeins 5 min ferðalag frá DTU með strætó, nema hvað...ég beið í fokking 20 mín eftir strætó! Og ekki það að þeir komu ekki...heldur var svo gríðarleg örtröð í stætóinn að meira segja frekjan hún ég gat ekki troðið sér :/ LUMMÓ enda hér eftir ætla ég að fara aðra og mun betri leið í skóla! Þá þarf ég bara að skipta 2var og fer með strætó alla leið uppí DTU :) Þá er ég sátt... En já það sem mest í taugarnar á mér að ekki nóg með að þurfa að bíða kl. 8 um morgunin uppá Lyngby station heldur var meiri háttar rigning! LUMMA í öðruveldi :)

En nóg um það...ég komst heim heilu og höldnu þannig við skulum ekki tala meira um það.

Á morgun er ég búin snemma....aaaaaa svo ljúft...:) og þá ætlum við reynir að gerast ábyrgðafullir einstaklingar og fara í bankan og borga reikninga, fara með flöskur, því jú við drekkum mikið af Kóki! og ýmislegt fleira :) Svo kemur Maggi ljúfurinn og við ætlum að panta saman pizzu og reyna að klára heimapróf sem við eigum að skila af okkur á mánudaginn :)

Voða lítið planað um helgina, þarf reyndar að hitta hópinn minn bæði á föstudaginn (þegar ég á að vera í fríi btw) og á laugardagsmorgunin :/ en samt betra að rispa þessu verkefni af, þá eru bara 2 eftir :) Já mér finnst ótrúlegt hve tíminn bara hreinlega flýgur áfram...ok mér finnst ég vera búin að vera lengi hérna, en þegar maður er búin að aðlagast og komin í fasta rútínu, þá bara hverfur tíminn hviss pang og búmm! Gleðileg jól öll sömul :) Grín..hehe

Rannveig sys kemur eftir 2 vikur! og Erla rétt á hælunum á henni :) Djöfull verður gaman þegar ég fæ allt fólkið mitt! Hlakka ótrúlega til og er gríðarlega spennt að sína öllum íbúðina og já bara lífið sem ég lifi hér í Köben :) Meina ég er bara orðin hálfur Dani...sem talar ENGA dönsku...bara lélega ensku! Kom mér svolítið á óvart verð ég að segja...hvað ég er léleg í ensku...Hef alltaf talið mér trú um að ég sé bara hin ágætast þegar kemur að enskunni...en nei...ekki hún Salóme :) Ég á bara stundum erfitt með að tjá mig...kannski er það stress eða feimni...veit ekki en ég veit bara það að þegar ég kem heim verð ég orðin Miss America og kannski bara Danmörk líka :)

Átti að halda kynningu á mánudaginn...en ég fékk að sleppa við það :) Svoddan auli...en ég bara meikaði það ekki! Við erum semsagt í hópavinnu og eigum að gera 3 verkefni saman yfir önnina. Ok við höfum lokið við eitt...og það var kynnt á mánudaginn. Allt í lagi með það en kennararnir voru svo góðir að velja bara eitthvern úr hópnum af handahófi sá sem ætti að halda kynninguna! Og ég undirbjó mig alveg gríðarlega...en samt hugsaði alltaf...meina glætan að ég verð valin :) Jú jú...og ég bara spurði Peter...hvort hann væri til í að halda hana fyrir mig ef ég væri vali, því ég væri eitthvað skrítin og liði ekki nógu vel (hóst lygari hóst) en já svo var auðvitað hún Salóme valin...og ég bara gerði mér upp veikindi...hversu oft hef ég gert það...2var...nei vá ekki einu sinni það oft :) En þetta fór nú allt saman vel í lokin :)

En já..shit ég held ég fari að hætta þessu massi og komi mér í rúmið! Þarf að vakna 6:20 á morgun....svo langt í skólan :/ ok ég er líka geðveik sem vill vera komin hálftíma fyrir tíma upp í skóla :) Meina betra en að vera of sein...

 

En ble

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 00:52:47 / Salóme María

Mánuður liðin, three to go :)

Jæja...

Lífið hér í Danaveldi er allt að ganga upp þessa dagana :) Skólinn auðvitað á fullu og ég sakna heim...en samt líður okkur svo vel :) Reynir er búin að finna skóla sem hann ætlar að reyna að komast inn eftir áramót...er meira segja búin að kaupa sér fanzy græju þannig hann geti farið að æfa sig alveg á fullu og rúllað inntökuprófinu upp! Hef enga trú á öðru :) Hins vegar önnur saga með vinnu....en reyndar hefur hann lítið sem ekkert leitað...en það kemur með tímanum. Allavega erum við ekkert byrjuð að svelta þannig...

Fórum á tónleika með Bellu gellu í gær í Tívolíunu í gær...ja Belinda skemmti sér :) Ég og Reynir hins vegar...já þetta var spess..Eitthverir danskir rapparar :) Ekki alveg mín uppáháls músik...en já. Enduðum síðan heima og spjölluðum til 4...

Svo í kvöld komu krakkarnir, Sæli og Bella og Gréta og Maron og við elduðum saman :) Eða Belinda og Sæli sáu um eldamennskuna og ég og Reynir horfðum á...Maron og Gréta komu seint...en já þau elduðu þessar líka dýrindis samlokur...ótrúlega góðar :) Dagný kom svo eftir matinn...Svo sátum við á spjallinu og kíktum út á localbúlluna :) strákunum langaði svo í billjard....við horfðum á :)  

Ótrúlega næs kvöld :)

Morgundagurinn fer síðan í lærdóm...nenni því svo minnst...

En já...vildi bara henda inn smá fréttum :) 


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Jólafrí á Íslandinu góða
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 821 dögum